
Aðgengisstillingar
Skoðaðu og breyttu stillingum tækisins úr stillingavalmyndinni. Stillingavalmyndin er
aðgengileg frá bæði forritaskjánum og flýtistillingunum.
Stillingavalmynd tækisins opnuð frá forritaskjánum
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Pikkaðu á
Stillingar.
Upplýsingar um tækið skoðaðar
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Um símann.
Flýtistillingaskjárinn opnaður eða honum lokað
•
Til að opna flýtistillingaskjáinn dregurðu stöðustikuna niður.
Stillingar valdar til birtingar á flýtistillingaskjánum
1
Dragðu stöðustikuna niður og pikkaðu svo á .
2
Á stikunni efst á skjánum snertir þú og heldur inni tákninu fyrir flýtistillinguna sem
þú vilt bæta við, færir það á neðri hluta skjásins og sleppir því þar.
Flýtistillingaskjárinn endurskipulagður
1
Dragðu stöðustikuna niður og pikkaðu svo á .
2
Haltu inni tákni og færðu það síðan í viðeigandi stöðu.