Sony Xperia M4 Aqua - Skjástillingar

background image

Skjástillingar

Birtustig skjásins stillt handvirkt óháð birtuskilyrðum

1

Á heimaskjánum pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Skjár og pikkaðu á sleðann Aðlögun birtustigs til

að slökkva á þessum eiginleika ef ekki er þegar slökkt á honum.

3

Pikkaðu á

Birtustig.

4

Dragðu sleðann til að stilla birtustigið.

Rafhlaðan endist lengur ef birtustigið er lækkað.

Kveikt eða slökkt á titringi við snertingu

1

Á heimaskjánum pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Hljóð og tilkynning > Önnur hljóð.

3

Pikkaðu á sleðann

Titra við snertingu til að kveikja eða slökkva á eiginleikanum.

Til að stilla biðtímann áður en slokknar á skjánum

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Skjár > Orkusparnaður.

3

Veldu valkost.

Til að slökkva á skjánum á skjótan hátt ýtirðu í stutta stund á rofann .

Stilling leturstærðar

1

Á heimaskjánum pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Skjár > Leturstærð.

3

Veldu valkostinn sem óskað er eftir.

Stilling hvítjöfnunar (ljósgjafa) á skjánum

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Skjár > Hvítjöfnun.

3

Dragðu sleðana í viðeigandi stöðu til að stilla hvítjöfnunina.

Pikkaðu á >

Sjálfgefin gildi til að færa hvítjöfnunarstillinguna aftur á sjálfgefin gildi.

55

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Snjallstýring baklýsingar

Snjallstýring baklýsingar heldur skjánum virkum á meðan þú heldur á tækinu. Þegar þú

leggur tækið frá þér slokknar á skjánum í samræmi við svefnstillingar þínar.

Kveikt eða slökkt á snjallstýringu baklýsingar

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Skjár > Snjallstýring baklýsingar.

3

Pikkaðu á sleðann til að kveikja eða slökkva á eiginleikanum.

Hanskastilling

Í hanskastillingu geturðu verið í hönskum og farið um skjáinn á tækinu þínu. Þegar

hanskastilling er notuð birtist hringlaga bendill á skjánum þar sem snerting er skráð.

Kveikt á hanskastillingu

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á > Stillingar > Skjár.

2

Pikkaðu á sleðann

Hanskastilling.

Næmnin veltur á stærð snertiflatarins á milli skjásins og fingursins í hanskanum sem þú notar

til að fara um skjáinn.

Skjáfesting

Þú notar skjáfestingu til að stilla tækið þannig að aðeins skjár tiltekins forrits birtist á

skjánum. Ef þú ert til dæmis að spila leik og kemur óvart við heimatakkann kemur

skjáfestingin í veg fyrir að glugginn með leikjaforritinu minnki. Einnig er hægt að nota

þennan eiginleika ef þú lánar öðrum tækið þitt svo viðkomandi eigi erfiðara með að opna

meira en einn skjá eða forrit. Til dæmis er hægt að festa símaforritið á skjáinn þegar þú

lánar einhverjum tækið til að hringja símtal svo viðkomandi geti ekki með góðu móti notað

t.d. skilaboða- eða tölvupóstsforritið.

Skjáfesting er ekki öryggiseiginleiki og kemur ekki að fullu í veg fyrir að aðrir notendur opni

skjáinn og fái aðgang að tækinu. Til að vernda gögnin þín ættir þú að stilla tækið þannig að

það biðji um PIN-númer, lykilorð eða munstur áður en hægt er að opna skjáinn.

Kveikt eða slökkt á skjáfestingu

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Öryggi > Skjáfesting.

3

Pikkaðu á sleðann til að kveikja eða slökkva á eiginleikanum.

4

Ef þú ert með kveikt á skjáfestingu geturðu pikkað á sleðann

Læsa tækinu við

losun til að kveikja eða slökkva á þessum viðbótaröryggiseiginleika.

Ekki er nauðsynlegt að hafa mynstur, PIN-númer eða lykilorð til að skjáfesting virki.

Skjár festur

1

Gakktu úr skugga um að kveikt sé á skjáfestingu í tækinu.

2

Opnaðu forrit og skjáinn sem þú vilt festa.

3

Pikkaðu á .

4

Til að birta skjáfestingartáknið , strjúktu upp.

5

Pikkaðu á .

6

Pikkaðu á

Náði því í sprettiglugganum sem birtist.

Skjár losaður

1

Á festa skjánum styðurðu við og samtímis.

2

Slepptu báðum hnöppum.

Ef þú valdir öryggisvalkost þegar þú festir skjáinn verður þú að slá inn mynstrið þitt, PIN-

númer eða aðgangsorð til að aflæsa tækinu áður en hægt er að losa skjáinn.

56

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.