Sony Xperia M4 Aqua - Gagnanotkun stjórnað

background image

Gagnanotkun stjórnað

Þú getur fylgst með gagnamagninu sem er flutt í eða úr tækinu þínu í gegnum

gagnatenginguna eða Wi-Fi-tengingu á tilteknu tímabili. Þú getur til dæmis skoðað

gagnamagnið sem hvert forrit notar. Þú getur einnig stillt viðvörun gagnanotkunar og

takmörkun til þess að forðast aukagjald fyrir flutning gagna í gegnum

farsímagagnatenginguna.

Stilling gagnanotkunarstillinga getur hjálpað þér að hafa meiri stjórn á gagnanotkun, en getur

ekki komið í veg fyrir aukagjöld.

Kveikt eða slökkt á gagnaumferð

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Gagnanotkun.

3

Pikkaðu á

Umferð gagnatengingar sleðann til að kveikja eða slökkva á

gagnaumferð.

Þegar slökkt er á gagnaumferð getur tækið áfram komið á Wi-Fi- og Bluetooth®-tengingum.

48

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Viðvörun um gagnanotkun stillt

1

Gakktu úr skugga um að kveikt sé á gagnaumferð.

2

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Gagnanotkun.

4

Til að stilla viðvörunarstigið dregurðu viðvörunarlínuna á valið gildi. Þú getur einnig

slegið inn gagnahámarkið handvirk með því að pikka á töluna við hliðina á línunni.

Þú færð viðvörunartilkynningu þegar magn gagnaumferðar nálgast hámarkið sem

þú stilltir.

Takmörk sett á notkun farsímagagna

1

Gakktu úr skugga um að kveikt sé á gagnaumferð.

2

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Gagnanotkun.

4

Pikkaðu á

Farsími-flipann.

5

Pikkaðu á sleðann við hliðina á

Stilla takmörkun gagnatenginga til að kveikja á

eiginleikanum og pikkaðu síðan á

Í lagi.

6

Dragðu gagnatakmörkunarlínuna á valið gildi til að stilla takmörk

farsímagagnanotkunar. Þú getur einnig slegið gagnahámarkið inn handvirkt með

því að pikka á töluna við hliðina á línunni.

Þegar farsímagagnanotkun nær stilltu takmarki er sjálfkrafa slökkt á henni.

Gagnanotkun einstakra forrita stýrt

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Gagnanotkun.

3

Pikkaðu á forritið sem þú vilt stýra og pikkaðu svo á sleðann

Takmarka

bakgrunnsuppl. forrits og pikkaðu á Í lagi.

4

Til að fá aðgang að sértækari stillingum fyrir forritið pikkarðu á

Forritsstillingar og

gerir viðeigandi breytingar.

Ef þú breytir stillingum fyrir gagnanotkun getur það haft áhrif á vinnslu einstakra forrita.

Gagnanotkun þín könnuð

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Gagnanotkun.

3

Pikkaðu á og svo á

Sýna Wi‑Fi.

4

Til að skoða upplýsingar um það gagnamagn sem flutt er um Wi-Fi er pikkað á

Wi-

Fi flipann.

5

Til að sjá upplýsingar um gagnamagnið sem flutt er um farsímagagnatengingu

pikkarðu á

Umferð gagnatengingar.