Sony Xperia M4 Aqua - Stillingar fyrir MMS og internet

background image

Stillingar fyrir MMS og internet

Til að senda margmiðlunarskilaboð eða komast á netið þegar ekkert Wi-Fi net er til staðar

þarftu að vera með virka farsímatengingu með réttum internet- og MMS-stillingum. Hér

eru nokkrar ábendingar:

Í flestum farsímakerfum og hjá flestum símafyrirtækjum eru internet- og MMS-stillingar

forstilltar í tækinu. Þú getur þá byrjað að nota internetið og senda margmiðlunarskilaboð

undir eins.

Það er hægt að hlaða internet- og MMS-stillingum niður síðar frá stillingavalmyndinni.

Þú getur hvenær sem er bætt við og breytt eða eytt internet- og MMS-stillingum í tækinu.

Ef þú breytir eða eyðir internet- eða MMS-stillingu óvart skatlu sækja stillingarnar aftur.

Ef þú kemst ekki á netið í gegnum farsímanet eða ef margmiðlunarskilaboð virka ekki þótt

internet- og MMS-stillingar hafi verið sóttar, sjá villuleit fyrir tækið þitt á

www.sonymobile.com/support/

varðandi vandamál við nettengingu, farsímagögn og

MMS.

Ef kveikt er á STAMINA-stillingu til að spara orku er öll gagnumferð stöðvuð þegar slökkt er á

skjánum. Ef þetta veldur vandræðum með tengingu geturðu prófað að undanskilja einhver forrit

eða þjónustur frá stöðvun á gagnaumferð eða slökkva tímabundið á STAMINA-stillingu. Frekari

upplýsingar má sjá í

Rafhlöðu- og orkustjórnun

á bls. 34.

Ef þú notar tæki með fleiri en einum notanda getur bara eigandinn, þ.e. aðalnotandinn, sótt

internet- og skilaboðastillingar úr stillingavalmyndinni, en sóttar stillingar ná til allra notenda.

Til að sækja Internet og MMS stillingar

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Meira > Niðurhal stillinga.

3

Pikkaðu á

Samþykkja. Þegar stillingarnar hafa verið sóttar birtist á stöðustikunni

og sjálfkrafa kviknar á gagnaumferð.

Ef ekki er hægt að sækja stillingar í tækið ferðu á sendistyrk á farsímakerfinu þínu. Farðu á opið

svæði þar sem engin hindrun er eða nær glugga og reyndu síðan aftur.

Til að bæta internet- og MMS-stillingum handvirkt inn

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Meira > Farsímakerfi.

3

Pikkaðu á

Heiti aðgangsstaða > .

4

Pikkaðu á

Nafn og sláðu inn heitið sem þú kýst.

5

Pikkaðu á

APN: og sláðu inn heiti aðgangsstaðarins.

6

Sláðu inn allar umbeðnar upplýsingar. Ef þú veist ekki hvaða upplýsinga er krafist

skaltu hafa samband við símafyrirtækið til að fá frekari upplýsingar.

7

Þegar því er lokið pikkarðu á og síðan á

Vista.

44

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Sóttar internets- og MMS-stillingar skoðaðar

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Meira > Farsímakerfi.

3

Pikkaðu á

Heiti aðgangsstaða.

4

Pikkaðu á hvaða atriði sem eru til staðar til að skoða meiri upplýsingar.