Sony Xperia M4 Aqua - Almennar myndavélarstillingar

background image

Almennar myndavélarstillingar

Tökustillingar

Handvirkt

Breyttu myndavélarstillingum á borð við upplausn, hvítjöfnun og ISO handvirkt.

Öflugri sjálfvirkni

Hagræddu stillingunum þínum eftir umhverfi.

Upptökuvél

Breyttu myndskeiðsstillingum á borð við upplausn, HDR-myndskeið og fókusstillingu handvirkt.

Myndavélarforrit

Veldu myndavélarforrit handvirkt.

HDR-myndskeið er aðeins í boði ef upplausn er stillt á HD.

Skipt á milli tökustillinga og myndavélarforrita

1

Ýttu á myndavélartakkann og haltu honum inni.

2

Strjúktu skjáinn á tökustillinguna sem óskað er eftir eða á forritalistann.

Myndavélarforrit

Mynd með hljóði

Taktu myndir með bakgrunnshljóði.

AR-áhrif

Taktu myndir eða myndskeið með viðbættu umhverfi og persónum.

Skapandi áhrif

Bættu áhrifum við myndir eða myndskeið.

97

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Víðmynd

Taktu breið- og víðmyndir.

Andlitsmyndarstíll

Taktu myndir með rauntímastílhrifum.

Margar myndavélar

Taktu upp sama umhverfi frá mörgum sjónarhornum á einum skjá.

Fjölmyndavélastilling

Fjölmyndavélastillingin gerir þér kleift að taka ljósmynd eða myndskeið sem sameinar ólík

sjónarhorn úr tveimur tækjum. Þú sérð tvær skjámyndir í myndavélarglugga tækisins –
aðra úr þinni eigin myndavél og hina úr tengdu Xperia

®

-tæki eða Sony-myndavél sem

styður NFC og Wi-Fi Direct

®

-tæknina.

Ef þú vilt t.d. taka ljósmynd á tónleikum sem sameinar hljómsveitina frá einu sjónarhorni

og áhorfendur frá öðru geturðu notað fjölmyndavélastillinguna til að útkoman verði sem

best.
Þú getur notað NFC til að setja upp fjölmyndavélastillinguna og þannig parað tækin tvö
með því að nota Wi-Fi Direct

®

-tæknina.

Til að nota fjölmyndavélastillingu

1

Kveiktu á NFC-eiginleikanum á báðum tækjunum sem þú vilt tengja.

2

Kveiktu á myndavélinni á tækinu.

3

Strjúktu skjáinn til að velja

og veldu síðan .

4

Pikkaðu á á skjáum beggja tækja.

5

Láttu NFC-nemasvæðin á báðum tækjum snertast. Bæði tækin ættu nú að
tengjast með Wi-Fi Direct

®

-tækninni.

6

Þegar tækin hafa tengst birtast tveir myndavélaskjáir á skjá tækisins – einn frá

myndavél tækisins og annar frá myndavél tengda tækisins.

7

Pikkaðu á

ef þú vilt endurraða myndavélaskjánum eða breyta lögun þeirra.

8

Þegar þú hefur lokið breytingum og ert tilbúin(n) að búa til sameinaða mynd eða

myndskeið pikkarðu á

Lokið > .

Sweep Panorama

Þú getur tekið breið- og víðmyndir úr láréttri og lóðréttri stefnu í auðveldri halda inni og

sveiflu hreyfingu.

Víðmynd tekin

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Strjúktu skjáinn til að velja

og veldu síðan .

3

Til að velja tökuátt pikkarðu á

.

4

Ýttu á myndavélartakkann og færðu myndavélina hægt og stöðugt í stefnu

hreyfingarinnar sem er sýnd á skjánum.

Stílstilling

Þú getur notað stílstillingu til að bæta áhrifum við andlitsmyndir jafnóðum og þú tekur þær

til að tryggja sem besta útkomu. Þú getur einnig notað stillinguna

Töfrageisli til að bæta

við kastljóssmynstri fyrir augun.

Hvernig útlitsmyndir eru lagaðar

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Strjúktu skjáinn til að velja

og veldu síðan .

3

Til að birta alla stíla pikkarðu á heiti stílsins sem valinn er, til dæmis

Blaðra.

4

Til að bæta fleiri stílum við pikkarðu á

Meira.

5

Veldu stílinn sem þú vilt nota og pikkaðu síðan á til að taka mynd.

98

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Hvernig Töfrageislaeiginleikinn er notaður

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Strjúktu skjáinn til að velja

og pikkaðu síðan á > .

3

Veldu sérsniðið mynstur til að nota kastljóssáhrif inni í augum.

Myndavélaforrit sótt

Þú getur sótt ókeypis forrit eða greitt fyrir myndavélaforrit frá Google Play™ eða annarri

aðilum. Áður en þú hleður niður skaltu ganga úr skugga um að þú sért með virka

nettengingu, helst Wi-Fi, til að takmarka gagnaflutningsgjöld.

Til að sækja myndavélarforrit

1

Opnaðu myndavélarforritið.

2

Strjúktu skjáinn til að velja

og pikkaðu síðan á .

3

Veldu forritið sem þú vilt sækja og fylgdu leiðbeiningunum til að ljúka

uppsetningunni.

Smile Shutter™ notað til að ná brosandi andlitum

Notaðu Smile Shutter™ tækni til að taka ljósmyndir af andliti þegar það brosir.

Myndavélin greinir allt að fimm andlit og velur eitt andlit fyrir brosstillingu og sjálfvirkan

fókus. Þegar bros greinist á andlitinu tekur myndavélin sjálfkrafa mynd.

Kveikt á Smile Shutter™

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Pikkaðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Smile Shutter og veldu brosstig.

Mynd tekin með Smile Shutter™

1

Þegar myndavélin er opnuð og kveikt á Smile Shutter™, beinir þú myndavélinni að

myndefninu. Myndavélin velur hvaða andlit á að stilla fókus á.

2

Andlitið sem er valið birtist inn í litaða rammanum og myndin verður tekin sjálfkrafa.

3

Til að taka mynd handvirkt þótt ekkert bros greinist skaltu ýta á

myndavélartakkann.

Andlitsgreining

Þú getur notað andlitsgreiningu til að færa andlit í útjaðrinum í fókus. Myndavélin nemur

sjálfkrafa allt að fimm andlit, sem eru látinn í ljós af hvítum ramma. Litaður rammi sýnir

andlit sem hefur verið valið fyrir fókus. Fókus er stilltur á það andlit sem er næst

myndavélinni. Einnig er hægt að pikka á einn ramma til að velja hvaða andlit ætti að vera í

fókus.

Kveikt á andlitsgreiningu

1

Strjúktu skjáinn til að velja

Handvirkt tökustillingu.

2

Pikkaðu á .

3

Pikkaðu á

Meira >Fókusstilling >Andlitsgreining.

Myndataka með andlitsgreiningu

1

Þegar kveikt er á myndavélinni og kveikt á

Andlitsgreining skaltu beina

myndavélinni að myndefninu. Hægt er að greina allt að fimm andlit og rammi birtist

um hvert þeirra.

2

Ýttu myndavélartakkanum hálfa leið niður. Litaður rammi sýnir hvaða andlit er í

fókus.

3

Ýttu myndavélartakkanum alla leið niður til að taka myndina.

Upplýsingum um staðsetningu bætt við myndir

Kveiktu á landmerki til að setja inn um það bil landfræðilega stöðu (landmerki) á myndir

þegar þú tekur þær. Landfræðileg staðsetning er ákvörðuð annaðhvort af þráðlausu kerfi

og/eða GPS tækni.

99

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Þegar birtist í myndavélaskjánum, kveikir vistun staðsetningar á sér en landfræðileg

staða hefur ekki fundist. Þegar birtist, kveikir vistun staðsetningar á sér og landfræðileg

staða er til staðar þannig að hægt er að landmerkja myndina þína. Þegar hvorugt þessara

tákna birtist er slökkt á vistun staðsetningar.

Kveikt á landmerkingu

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Pikkaðu á

Stillingar > Staðsetning.

3

Pikkaðu á aflrofann.

4

Kveiktu á myndavélinni.

5

Pikkaðu á .

6

Pikkaðu á

Meira > Vista staðsetningu. Dragðu sleðann til hægri.

Snertimyndataka

Finndu fókussvæði og snertu svo myndavélarskjáinn með fingrinum. Mynd er tekin um

leið og þú sleppir skjánum.

Snertivörn

Þú getur afvirkjað snertiskjáinn til að forðast óviljandi snertingar þegar þú notar

myndavélina.

Sjálfvirk forskoðun mynda

Þú getur valið að forskoða myndir eða myndskeið sem þú hefur nýlokið við að taka.

Ótakmarkað

Þegar þú hefur tekið mynd eða myndskeið birtist forskoðunin.

5 sekúndur

Forskoðunin á myndinni eða myndskeiðinu sést í 5 sekúndur að töku lokinni.

3 sekúndur

Forskoðunin á myndinni eða myndskeiðinu sést í 3 sekúndur að töku lokinni.

Breyta

Að töku lokinni opnast myndin eða myndskeiðið svo hægt sé að gera breytingar.

Slökkt

Myndin eða myndskeiðið vistast að töku lokinni og engin forskoðun birtist.

Nota hljóðstyrkstakka sem

Hægt er að velja hvernig nota á hljóðstyrkstakkann við myndatöku.

Aðdráttur

Notaðu hljóðstyrkstakkann til að auka og minnka aðdrátt

Hljóðstyrkur

Notaðu hljóðstyrkstakkann til að stilla hljóðstyrkinn.

Lokari

Notaðu hljóðstyrkstakkann til að taka myndir.

Hljóð

Kveikt eða slökkt á hljóði

Gagnageymsla

Þú getur valið að vista gögnin þín annað hvort á færanlegt SD-kort eða yfir í innri geymslu

tækisins.

Innri geymsla

Myndir eða myndskeið eru vistuð á minni tækisins.

SD-kort

100

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Myndir eða myndskeið eru vistuð á SD-kort.

Flýtiræsing

Notaðu flýtiræsingarstillingar til að ræsa myndavélina þegar skjárinn er læstur.

Einungis ræsa

Þegar kveikt er á þessari stillingu getur þú ræst myndavélina þegar skjárinn er læstur með því að ýta á

myndavélarhnappinn og halda honum inni.

Ræsa og smella af

Þegar kveikt er á þessari stillingu getur þú ræst myndavélina og tekið mynd sjálfkrafa þegar skjárinn er læstur

með því að ýta á myndavélarhnappinn og halda honum inni.

Ræsa og taka upp myndskeið

Þegar kveikt er á þessari stillingu getur þú ræst myndavélina og hafið að taka upp myndskeið þegar skjárinn

er læstur með því að ýta á myndavélarhnappinn og halda honum inni.

Slökkt

Hvítjöfnun

Þessi stilling, sem er aðeins í boði í

Handvirkt tökustillingu, stillir litajafnvægið í samræmi

við birtuskilyrði. Þú getur einnig stillt lýsinguna handvirkt á EV-sviðinu -2.0 EV to +2.0 EV.

Til dæmis geturðu aukið birtu myndarinnar eða minnkað heildarlýsinguna með því að

pikka á plús- eða mínusstjórntakkana þegar hvítjöfnunar-/lýsingargildis-/HDR-

stillingartáknið birtist.

Sjálfvirk

Stillir litajafnvægið sjálfkrafa til að passa við birtuskilyrðin.

Ljósapera

Stillir litajafnvægi fyrir hlýja birtu, eins og í lýsingu frá ljósaperum.

Flúrljós

Stillir litajafnvægið að flúrlýsingu.

Dagsbirta

Stillir litajafnvægið fyrir sólskin utandyra.

Skýjað

Stillir litajafnvægið að skýjuðu veðri.