Sony Xperia M4 Aqua - Stillingar myndupptökuvélar

background image

Stillingar myndupptökuvélar

Til að stilla stillingar upptökuvélarinnar

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Strjúktu að

.

3

Pikkaðu á til að birta stillingar.

4

Veldu stillinguna sem þú vilt breyta, breyttu henni síðan.

Yfirlit yfir stillingar myndupptökuvélar

Umhverfisval

Umhverfisvalið gerir þér kleift að setja upp myndavélina á fljótlegan hátt fyrir algengar

aðstæður með því að nota forstilltar umhverfisstillingar. Hver umhverfisstilling er hönnuð til

að framleiða bestu gæði myndbands og mögulegt er í tilteknu upptöku umhverfi.

Sjálfvirkt

Umhverfisval er sjálfvirkt

Slökkt

Slökkt er á umhverfisvali og þú getur tekið upp myndskeið handvirkt.

104

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Mjúk smella

Notað fyrir töku myndskeiðs gegn mjúkum bakgrunnum.

Landslag

Notað fyrir landslagsmyndskeið. Myndavélin stillir fókus á fjarlæga hluti.

Næturmynd

Þegar næturstillingin er virk er ljósnæmi aukið. Notað í illa lýstu umhverfi. Myndskeið af hlutum á

mikilli hreyfingu gætu orðið óskýr. Haltu hendinni stöðugri eða notaðu stuðning. Slökktu á

næturstillingunni þegar birtuskilyrði eru góð til að bæta myndgæðin.

Strönd

Notað fyrir myndskeið af umhverfi við sjó eða vatn.

Snjór

Notað við bjartar aðstæður til að koma í veg fyrir yfirlýstar hreyfimyndir.

Íþróttir

Notað fyrir myndskeið af hlutum á mikilli hreyfingu. Stuttur lýsingartími dregur úr óskýrleika vegna

hreyfingar.

Partí

Notað við upptöku myndskeiða innandyra í illa lýstu umhverfi. Þetta umhverfi nemur bakgrunnsljós

eða kertaljós innandyra. Myndskeið af hlutum á mikilli hreyfingu gætu orðið óskýr. Haltu hendinni

stöðugri eða notaðu stuðning.

Myndskeiðsupplausn

Stilltu upplausn myndskeiða fyrir mismunandi snið.

Fullt HD

1920×1080(16:9)

Fullt HD-snið (full háskerpa) með 16:9 myndhlutfalli.

HD

1280×720(16:9)

HD (háskerpu) snið með 16:9 myndhlutfalli.

VGA

640×480(4:3)

VGA snið með 4:3 myndhlutfalli.

Margmiðlunarskilaboð

Taktu upp myndskeið sem henta til að senda í margmiðlunarskilaboðum. Upptökutími þessa myndsniðs er

takmarkaður svo myndskeiðsskrár passi í margmiðlunarskilaboð.

Fókusstilling

Fókusstillingar stýra því hvaða hluti myndskeiðsefnisins er skarpt. Þegar kveikt er á

samfelldum sjálfvirkum fókus stillir myndavélin stöðugt fókus til að svæðið innan hvíta

fókusrammans haldi skerpu sinni.

Stakur sjálfv. fókus

Myndavélin stillir sjálfkrafa fókusnum á valið myndefni. Kveikt er á sjálfvirka fókusnum.

Andlitsgreining

Myndavélin nemur allt að fimm andlitum, sem bend er á í römmum á skjánum. Myndavélin stillir fókusinn

sjálfkrafa á andlitið sem er næst. Þú getur einnig valið hvaða andlit á að stilla fókusnum á með því að pikka á

það á skjánum. Þegar þú pikkar á myndavélarskjáinn sýnir gulur rammi hvaða andlit er valið og í fókus. Ekki er

hægt að nota andlitsgreiningu fyrir allar tegundir umhverfis. Kveikt er á sjálfvirka fókusnum.

Eltifókus á myndefni

Þegar þú velur hlut með því að snerta hann í leitaranum, eltir myndavélin hann fyrir þig.

Smile Shutter™ (myndskeið)

Notaðu eiginleikann Smile Shutter™ til að ákveða hvernig brosi myndavélin bregst við

áður en myndskeið er tekið.

105

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Myndskeiðahristivörn

Erfitt getur verið að halda tækinu stöðugu þegar myndskeið er tekið upp. Hristivörnin

dregur úr áhrifum vegna smávægilegra hreyfinga handarinnar.

Vasaljós

Notaðu ljósið til að taka upp myndskeið þegar lýsing er léleg eða þegar baklýsing er til

staðar. Táknið fyrir upptökuljós er bara tiltækt á upptökuskjánum. Athugið að stundum

geta myndgæðin verið betri án ljóssins, jafnvel þótt lýsingin sé léleg.

Kveikt

Slökkt

HDR-myndskeið

Notaðu myndskeiðs HDR (hátt virkt svið) stillingarinnar til að taka myndskeið upp á móti

sterkri baklýsingu eða við aðstæður þar sem birtuskilin eru skörp. HDR-myndskeið bætir

upp fyrir tapið á smáatriðum og gefur mynd sem er málsvari fyrir bæði dökkum og ljósum

svæðum.

106

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.