Myndskeið unnin í forritinu Movie Creator
Þú getur átt við myndskeið sem þú hefur tekið með myndavélinni. Þú getur til dæmis
klippt myndskeið niður í þá lengd sem þú vilt eða breytt spilunarhraða myndskeiðs.
Upphaflega myndskeiðið geymist áfram í tækinu þegar þú hefur vistað breytta
myndskeiðið.
Myndskeið klippt til
1
Finndu og pikkaðu á myndskeiðið sem þú vilt breyta í Albúmi.
2
Pikkaðu á skjáinn til að birta tækjastikurnar og pikkaðu svo á .
3
Ef um það er beðið velurðu
Myndskeiðaritill og pikkar svo á Skera.
4
Til að færa klippirammann til á tímalínunni styðurðu á jaðar rammans, dregur hann
þangað sem þú vilt hafa hann og pikkar á
Nota.
5
Til að vista afrit af klippta myndskeiðinu pikkarðu á
Vista.
Hraði myndskeiðs stilltur
1
Finndu og pikkaðu á myndskeiðið sem þú vilt spila í Albúmi.
2
Pikkaðu á skjáinn til að birta tækjastikurnar og pikkaðu svo á .
3
Ef um það er beðið velurðu
Myndskeiðaritill og pikkar svo á Hraði.
4
Veldu valkost, haltu jaðri tímalínunnar inni, dragðu hana þangað sem þú vilt hafa
hana og pikkaðu á
Nota.
5
Til að vista afrit af breytta myndskeiðinu pikkarðu á
Vista.
Mynd tekin af myndskeiði
1
Finndu og pikkaðu á myndskeiðið sem þú vilt spila í Albúmi.
2
Pikkaðu á skjáinn til að birta tækjastikurnar og pikkaðu svo á .
3
Ef um það er beðið velurðu
Myndskeiðaritill og pikkar svo á Myndataka.
4
Með hjálp örvanna, eða með því að draga bendilinn á framvindustikuna, veldu
rammann sem þú vilt fanga og smelltu svo á
Vista.